Sólvarnargler er gler sem ætlað er að draga úr áhrifum sólarljóss og minnka gegnumstreymi hita inn í húsnæði. Hægt er að nota sólvarnargler sem hluta af öðru einangrunargleri.
Sólvarnargler eru bæði til glær og lituð, með eða án spegilhúðar. Til eru margar tegundir sólvarnarglers frá hráefnisframleiðendum víða um heim. Það má benda á kosti þess að velja glertegund sem er lagervara hér á landi, svo afgreiðsla gangi hraðar, og einnig vegna viðhalds og brota síðar meir.




