Sími 488 9000samverk@samverk.isSmiðjuvegur: Hella: 

Mælingar, uppsetning og afhending

Samverk býður mælingar á sérverkefnum eins og sturtuklefum, glerhandriðum, glerveggjum og glerhurðum – og setur glerið upp.

Mælingarþjónusta

Til að tryggja að rétt stærð af gleri sé framleidd í verkefnið mælum við með því að sérfræðingur Samverks skoði og meti aðstæður og mæli stærð glerja.

Greitt er fyrir þjónustuna frá því mælingarmaður leggur af stað frá starfsstöð og þar til hann skilar af sér gögnum á starfsstöð. Einnig er greitt fyrir akstur á verkstað.

Uppsetningarþjónusta

Ísetning einangrunarglers á alltaf að vera unnin af fagmönnum. Ending einangrunarglersins fer að mestu leyti eftir gæðum ísetningarinnar.

Greitt er fyrir þjónustu uppsetningarmanna frá því gler og festingar hafa verið afgreidd í bíl þeirra:

FerðatímiTíminn sem fer í að koma glerinu á verkstað
Uppsetning og frágangurVinnan á verkstað
FerðatímiTil baka á starfsstöð
Gler og festingar komin í bílKomið á starfsstöð

Verð á uppsetningu miðast við dagvinnutíma, gott aðgengi og örugga festu. Tækjaleiga, t.d. kranar, lyftur og vinnupallar, greiðist sérstaklega. Sjá nánar í skilmálum.

Uppsetningarmaður Samverks að störfum
Gler tilbúið til afhendingar

Afhending

Samverk annast heimkeyrslu á gleri á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi samkvæmt gjaldskrá, á eigin flutningabílum eða á vöruflutningamiðstöðvar eftir samkomulagi.

Hringt er í viðtakanda með fyrirvara til að athuga hvort hægt sé að taka á móti glerinu ákveðinn dag.

  • Eigin bílarÞægileg og örugg þjónusta. Glerið er alltaf afhent heilt og þarf ekki að tryggja það sérstaklega.
  • VöruflutningarEf glerið er flutt pakkað á vöruflutningamiðstöð er viðskiptavinum bent á að tryggja það í flutningi þaðan og á áfangastað.
  • Sækja sjálfÍ glerverksmiðjuna á Hellu eða á lagerinn á Smiðjuvegi 2 í Kópavogi.

Fá tilboð Sími 488 9000