Í daglegu tali er oft talað um rúðu eða gler þegar átt er við einangrunargler. Það er gler sem notað er utanhúss til að halda hita inni, draga úr kulda og minnka hávaða.
Á Íslandi er tvöfalt einangrunargler algengast. Þá eru tvær glerplötur settar saman með bil á milli sem veitir einangrun gegn kulda og hitasveiflum.
Einangrunargler er til í mismunandi útfærslum og mikilvægt er að velja rétt gler eftir aðstæðum. Hægt er að fá einangrunargler með hljóðvörn, öryggisgleri, sandblæstri, mynstri o.fl. Leitið ráða hjá sölumanni.
Viðbótareiginleikar
- Hert glerEykur öryggi og þolir högg upp að vissu marki.
- SólvarnarglerDregur úr hitamyndun í sólgluggum og áhrifum sólar á húsgögn.
- HljóðvarnarglerMinnkar utanaðkomandi hávaða.
Tegundir glerja
- TOP N+Hefur mun betra einangrunargildi en önnur hefðbundin húðuð gler.
- Energy N sólvarnarglerMjög góður kostur fyrir heimilið. Minnkar sólarhitann á sumrin og einangrar gegn kulda á veturna.
Tæknilýsing (PDF) - Stopray Vision sólvarnarglerEinangrunar- og sólvarnargler og góður kostur fyrir skrifstofuna.
Tæknilýsing (PDF)




