Söluskilmálar
Söluskilmálar Glerverksmiðjunnar Samverks ehf. gilda ávallt nema um annað sé samið skriflega. Útgáfa: júlí 2025.
Öll helstu samskipti um tilboð, pantanir og aðrar upplýsingar milli Glerverksmiðjunnar Samverks ehf. og viðskiptavina skulu vera í tölvupósti. Upplýsingar sem gefnar eru í símtali, og kostnaður vegna mistaka sem af því hlýst, eru alfarið á ábyrgð viðskiptavinar.
Samverk ber ekki ábyrgð á vinnubrögðum þriðja aðila, svo sem verktaka, iðnaðarmanna, einstaklinga eða fyrirtækja, jafnvel þó Samverk hafi bent á viðkomandi.
Eftir að tilboð eða pöntun er gerð sendir Samverk staðfestingu í tölvupósti. Viðskiptavinur les yfir upplýsingar á tilboði og/eða pöntun, samþykkir og gengur frá greiðslu eða innborgun áður en pöntun fer í framleiðslu. Öll verð eru staðgreiðsluverð nema annað sé tekið fram.
Vörur að verðmæti undir 250.000 kr. skal greiða að fullu við pöntun. Yfir þeim mörkum skal greiða 50% staðfestingargjald áður en framleiðsla hefst og eftirstöðvar fyrir afhendingu. Að öðru leyti er vísað í viðskiptasamninga, greiðslufresti og/eða reikningsviðskipti.
Fylla þarf út umsóknarform um reikningsviðskipti, sjálfsábyrgð, úttektarheimild og greiðsluskilmála. Samverk áskilur sér þó ávallt rétt til að fara fram á innborgun eða fyrirframgreiðslu ef um stór verkefni er að ræða. Lokað verður fyrirvaralaust á úttektir umfram heimildir ef ekki hefur verið samið um þær.
Vanskil fram yfir eindaga eru send í lögfræðiinnheimtu með tilheyrandi kostnaði og tilkynnt til Creditinfo. Greiða skal samkvæmt útsendum kröfum í netbanka ásamt dráttarvöxtum ef komið er fram yfir eindaga. Varan er eign Samverks þar til fullnaðargreiðsla hefur borist.
Glermál eru á ábyrgð viðskiptavinar, sem útvegar endanleg glerskurðarmál, glertegund, glerþykktir og aðrar tæknilegar útfærslur, tilbúnar til framleiðslu. Kaupanda er bent á að láta burðarþolshönnuð útfæra og reikna út þykktir glers.
Samverk áskilur sér rétt til gjaldfærslu útseldrar vinnu vegna undirbúnings pantana og tæknilegrar útfærslu, og fyrir að mæla upp skapalón, glugga og önnur verkefni.
| Véltæk lágmarksstærð | 190 × 350 mm |
| Véltæk hámarksstærð | 2000 × 3500 mm |
| Lágmarks reikningsfærð stærð | 0,5 m² á stykki |
| Skáskornar rúður | 37% álag |
| Hringlaga form | 100% álag |
| Hraðpöntun (forgangsafgreiðsla) | 30% álag |
Aukagjald leggst á glerstærðir utan véltækra framleiðslustærða. Breytingargjald er tekið fyrir að breyta glermálum eftir staðfestingu til framleiðslu. Taka þarf strax fram við pöntun ef um hraðpöntun er að ræða.
Leiga á flutningsrekkum er 9.500 kr. í allt að 10 daga. Hafi rekka ekki verið skilað innan þess tíma er gjaldfært 20.000 kr. fyrir hverja viku. Eftir 3 mánaða vanskil er sendur reikningur fyrir virði rekkans, 400.000 kr. Týnist rekki eða skemmist er það á ábyrgð kaupanda.
Tilkynna skal strax um tóman flutningsrekka í síma 488 9000 eða á samverk@samverk.is. Samverk sækir rekka ef samið hefur verið um akstursgjald á sértilgreind svæði; annars skila viðskiptavinir rekkanum í sama ástandi á starfsstöð Samverks eða á vöruflutningamiðstöð. Viðskiptavinur ber flutningskostnað frá vöruflutningamiðstöð á afhendingarstað og til baka nema um annað sé samið.
Uppgefinn framleiðslutími eða afhendingardagur er alltaf áætlaður, er ekki loforð og er háður hráefnis- og verkefnastöðu hverju sinni. Undirbúa þarf hráefnisöflun tímanlega fyrir stærri verkefni. Ekki er hægt að taka frá pláss í framleiðsluröðinni með ófullgerðum glermálum.
Mæling, tímafrekur undirbúningur, akstur og uppsetning eru ekki innifalin í áætluðum framleiðslutíma. Ef vara er ekki sótt innan 3 mánaða frá pöntun áskilur Samverk sér rétt til að farga henni á kostnað kaupanda og innheimta söluvirði hennar.
Framleiðsluvörur Samverks eru framleiddar samkvæmt stöðlunum ÍST EN 1279 (einangrunargler), ÍST EN 12150 (hert gler) og ÍST EN 12600 (samlímt gler). Ábyrgðartími á límingu einangrunarglers er fimm ár að skilyrðum uppfylltum. Ábyrgð á einföldu gleri, festingum og vinnu er samkvæmt almennum lögum um lausafjárkaup.
Kaupandi ber ábyrgð á glerinu eftir að það hefur verið afgreitt heilt af flutningabíl Samverks og er bent á brotatryggingu. Eðlilegt er að blæbrigðamunur geti verið á milli hráefnissendinga, birgja og glerþykkta. Skilgreining á frávikum og göllum er samkvæmt ÍST EN 572.
Ágalla eða mistök sem rekja má til Samverks skal tilkynna innan 3 daga frá afhendingu. Sé glerið sannanlega gallað framleiðir Samverk nýtt gler í staðinn; ekki er bættur kostnaður vegna umskipta, tækjakostnaður né annar kostnaður.
Hert einfalt gler uppfyllir ekki kröfur um fallvarnir sem gerðar eru til glerhandriða, gólfsíðra glugga og svalaganga. Kaupandi eða húseigandi þarf því að gera viðbótarráðstafanir til að krafa um fallvörn náist.
Verð á uppsetningu miðast við dagvinnutíma, gott aðgengi á verkstað og örugga festu fyrir kerfin. Vinnutími reiknast frá því starfsmenn leggja af stað frá starfsstöð í Kópavogi. Gengið er út frá því að bora megi í gólf eftir þörfum og að gólf, loft og veggir séu bein og hæf til uppsetningar.
Sérstakar ráðstafanir greiðast sérstaklega, sem og tækjaleiga (kranar, lyftur, vinnupallar) og aukavinna vegna glerburðar. Húseigendur bera ábyrgð á að sýna uppsetningarmönnum hvar lagnir liggja í gólfum og veggjum.
Almenn sölutilboð gilda í 20 daga frá dagsetningu tilboðs nema annað sé tekið fram. Ef munur er á tilboðsmagni og afgreiddu magni ræður einingarverð tilboðs. Samningsverð eru endurskoðuð árlega í samræmi við byggingarvísitölu, gengi gjaldmiðla og almenna verðlagsþróun.
Ofangreindir söluskilmálar gilda ávallt nema um annað sé samið skriflega. Nýjasta útgáfa á vef Samverks gildir hverju sinni.
