Sandblásið gler er gler með mattri áferð þar sem áloxíði er blásið á. Möguleikarnir eru endalausir og hér fær hugmyndaflugið að ráða. Einnig getum við málað sandblásið gler og spegla.
Sandblásið gler má nýta sem skilrúm innanhúss, í glerhurðir, sturtuklefa, baðherbergi, eldhús, handrið, húsgögn, skilti og skrautspegla.
Speglar eru oft sandblásnir aftan á húðina svo ekki sé hægt að koma við sandblástursflötinn að framanverðu, og einnig má setja ljós fyrir aftan spegilinn svo ljósið skíni í gegnum sandblásna svæðið.




