Glerhandrið er frábær lausn til að viðhalda birtuflæði um rýmið. Útfærslur á handriðum fara yfirleitt eftir því hvernig þau eru fest. Í handrið, og annars staðar þar sem huga þarf að fallvörnum, mælum við með hertu og samlímdu gleri.
Gler getur verið boltað með punktfestingum eða boltum að neðan í gegnum glerið og í gólfplötuna. Mikilvægt er að festa glerið án þess að þvinga það að gólfplötunni; gler undir spennu getur brotnað. Í öllum útfærslum mælum við með handlista til styrkingar.
Látið viðurkenndan ráðgjafa hanna útlit, ákveða festingar og reikna út glerþykktir.
Gögn og vottanir
- Bæklingur – Glerhandrið frá PauliSækja



